Viðskipti erlent

Ný og endurbætt útgáfa af iTunes komin

iTunes 11.
iTunes 11. MYND/APPLE
Tæknirisinn Apple opinberaði í dag nýjustu útgáfuna af iTunes margmiðlunarforritinu. Þessi ellefta kynslóð iTunes státar af nýju notendaviðmóti þar sem höfuðáhersla er lögð á plötuumslög og auðvelt aðgengi að skráarsafninu.

Í yfirlýsingu frá Apple kemur fram að uppfærslan sé sú viðamesta hingað til.

Breytingarnar eru þó ekki aðeins útlitslegar. iTunes verður nú beintengt iCloud, skýþjónustu Apple. Þannig verður hægt að nálgast tónlist, kvikmyndir og sjónvarpsþætti á öllum tækjum sem tengd eru þjónustunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×