Viðskipti erlent

Nordea kosinn banki ársins í Vestur Evrópu

Tímaritið The Banker, sem gefið er út af Financial Times, hefur kosið Nordea bankann sem banka ársins í Vestur Evrópu. Nordea er fyrsti norræni bankinn sem hlýtur þessa viðurkenningu.

The Banker segir að viðskiptavinaþjónusta Nordea sé til fyrirmyndar og að bankinn hafi sýnt mikinn stöðugleika og ábyrgð á erfiðum tímum í efnahagslífinu.

Christian Clausen bankastjóri Noreda er ánægður með niðurstöðuna og segir hana veita starfsmönnum bankans innblástur til að gera enn betur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×