Viðskipti erlent

Fyrsta stóra gasflutningaskipið siglir norðausturleiðina

Stórt gasflutningaskip siglir nú norðausturleiðina meðfram norðurströnd Rússlands í átt til Japan. Þetta er fyrsta skip sinnar tegundar sem reynir að sigla þessa leið

Skipið sem hér um ræðir heitir Ob River og það er lestað með 150.000 rúmmetrum af fljótandi gasi. Skipið var byggt árið 2007 en skrokkur þess er sérstaklega styrktur til siglinga í ís.

Skipið sigldi frá Hammerfest í Noregi þann 7. nóvember s.l. og á að leggjast að bryggju í Japan í næsta mánuði. Rússneskur kjarnorkuknúinn ísbrjótur fylgir Ob River megnið af leiðinni.

Það er rússneski orkurisinn Gazprom sem hefur tekið skipið að leigu frá grísku skipafélagi. Ef sigling þess heppnast hefur Gazprom sparað sér 20 daga í siglingu með þennan farm miðað við að skipið hefði þurft að sigla hefðbundna leið í gegnum Súez skurðinn. Eldsneytissparnaðurinn er 40%.

Undirbúningur að þessari siglingu skipsins hefur staðið yfir í eitt ár. Forráðamenn gríska skipafélagsins gera sér góðar vonir um að siglingin muni opna fyrir frekari möguleika þeirra til þess að nýta sér norðausturleiðina í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×