Viðskipti erlent

Eignir 16 auðugustu kvenna í Danmörku nema 1.300 milljörðum

Hanni Toosbuy á um 300 milljarða króna í hreinum eignum.
Hanni Toosbuy á um 300 milljarða króna í hreinum eignum.
Í úttekt sýnir að 16 danskar konur eru milljarðarmæringar í dönskum krónum og eiga þær samtals 59 milljarða danskra króna eða tæplega 1.300 milljarða króna í hreinum eignum en sú upphæð slagar hátt upp í landsframleiðslu Íslands.

Auðugasta danska konan er Hanni Toosbuy erfingi Ecco Sko veldisins en auður hennar er metin á tæplega 15 milljarða danskra króna eða um 300 milljarða króna.

Þetta kemur fram í Berlingske Tidende. Næst á eftir Hanni koma tvær dætur Lego-erfingjans Kirk Kristiansen en þær munu hver um sig eiga um 4 milljarða danskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×