Viðskipti erlent

Fjölgar um tæplega þrefaldan íbúafjölda Norðurlanda á ári

Magnús Halldórsson skrifar
Fjölgun íbúa Indlands verður gríðarlega hröð, samkvæmt mannfjöldaspám Sameinuðu þjóðanna og Eurostat. Fram til ársins 2060 mun íbúum Indlands fjölga um ríflega 500 milljónir, eða sem nemur tæplega öllum íbúum Evrópu.

Því er spáð að íbúar heimsins verði 9,6 milljarðar árið 2060, þar af verði 1,7 milljarður manna búsettur í Indlandi, sem þá verður langsamlega fjölmennasta ríki heimsins. Meðaltalsfjölgun íbúa á jörðinni nemur því 68,4 milljónum manna á hverju ári næstu 38 árin, eða sem nemur tæplega þreföldum íbúafjölda Norðurlandanna (Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Finnland, Ísland, Fæeyjar, Frænland), en heildaríbúafjöldi þar er nú um 25,7 milljónir íbúa.

Fjallað er um þessa þróun í skýrslu Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, sem kom út í síðustu viku, en fjallað var um hana í fréttaskýringu hér á Vísi á dögunum.

Ljóst er að þessi hraða fjölgun íbúa jarðar, sem miklu leyti mun eiga sér stað í Asíu, mun kalla á hraða fjölgun starfa og eflingu innviða víða um heim, að því er segir í skýrslu Eurostat. 

Fleiri fréttir

Sjá meira

×