Tíska og hönnun

Glænýtt tímarit sem lofar góðu

"Ritstjóri Nordic Style Magazine hafði samband við mig og bað mig um að taka myndir fyrir tímaritið, forsíðuna og tískuþátt í blaðinu. Ég og teymið mitt settumst niður og bjuggum til sögu. Í kringum "söguna" völdum við fatnað, staðsetningu og settum "moodið" fyrir tökuna. Ég átti að fanga tísku frá norðurlöndunum, íslenskt umhverfi og búa til sögu sem hentaði inn í tímarit með fókusinn á tísku og hönnun á norðurlöndunum," segir Kári Sverrisson ljósmyndari spurður um myndaþáttinn sem hann tók fyrir tímaritið Nordic Style Magazine.



"Myndatakan var tekin upp og myndbrot svo klippt saman sem fangaði stemninguna i tökunni. Takan fór fram í hrauninu vestan Hafnarfjarðar þar sem fiskihausar eru hertir í hjöllum. "In her presence" fjallar um nánd sem ekki getur orðið, það sem við gerum og hvert við förum til þess að ná að upplifa hana," segir Kári
"Fatnaður í tískuþættinum kom frá hinum ýmsu merkjum frá norðurlöndunum, má þar nefna hönnuði eins og EYGLO, Hörpu Einarsdóttur, Malene Birger, merki eins og Lindex, Vero Moda, Vagabond skó sem fást í Kaupfélaginu og Moss úr Galleri 17."

Ljósmyndari Kári Sverrisson, stílisti Síta Valrún, förðun Margrét Sæmunds, hár Katrín Ósk með Label M, aðstoðarljósmyndari/video Hjalti Rafn, fyrirsætur Steinunn María og Kristín Lív hjá Eskimo.

Hlekkur á tímaritið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×