Viðskipti erlent

Ágreiningur áfram um útfærsluna

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, að loknum blaðamannafundi í Brussel.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, að loknum blaðamannafundi í Brussel. nordicphotos/AFP
Leiðtogar Evrópusambandsins náðu ekki samkomulagi um að bankabandalag með sameiginlegu bankaeftirliti evruríkjanna verði að veruleika fyrir áramótin, eins og Francois Hollande Frakklandsforseti hafði vonast til.

Hins vegar ákváðu þeir að fyrir áramótin yrðu þeir búnir að semja um regluverk nýja bankabandalagsins, sem taki síðan til starfa einhvern tímann á næsta ári.

Með bankabandalaginu fylgir sá möguleiki að stöðugleikasjóður ESB komi bönkum aðildarríkjanna til hjálpar, en Spánverjar og fleiri evruríki bíða spennt eftir þeirri lausn á sínum fjárhagsvanda.

„Markmiðið er mjög einfalt: Við viljum rjúfa tengslin milli stjórnar – og stundum óstjórnar – bankanna og afleiðinga hennar fyrir fjárlög ríkjanna," sagði Elio di Rupo, forsætisráðherra Hollands.

Enn eru afar skiptar skoðanir um útfærsluna, en leiðtogarnir búa sig nú undir langa og stranga helgi seint í nóvember þegar næsti leiðtogafundur verður haldinn.

Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikklands, sagðist hins vegar ánægður með að andrúmsloftið hefði breyst. Nú hefðu Grikkir fengið fullvissu fyrir því að þurfa ekki að yfirgefa evrusvæðið.

Grikkir hafa þó ekki enn tryggt sér það viðbótarframlag frá ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, sem þeir þurfa að fá fyrir 16. nóvember. Þann dag tæmist ríkissjóður Grikklands, fáist ekki frekari aðstoð.- gb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×