Tíska og hönnun

Sjáið brúðarkjól Playboy-skvísu

MYNDIR / COVER MEDIA
Playboy-kóngurinn Hugh Hefner kvæntist sinni heittelskuðu, Crystal Harris, á gamlárskvöld og kom öllum á óvart. Þau giftu sig að sjálfsögðu á Playboy-setrinu.

Crystal, sem er 26 ára, klæddist fölbleikum kjól með hafmeyjusniði en Hugh, 86 ára, var reffilegur í svörtum smóking.

Hamingjusöm brúðhjón.
Samband þeirra hefur ekki verið þrautalaust. Þau trúlofuðu sig fyrst árið 2011 en Crystal sleit trúlofuninni nokkrum dögum áður en brúðkaupið átti að eiga sér stað. Parið tók aftur saman í maí á þessu ári og eru nú orðin hjón.

Crystal var dugleg á Twitter á brúðkaupsdaginn.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×