Tíska og hönnun

Býr til föt úr gömlum sokkabuxum

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
,,Þetta var valáfangi í samstarfi við Sorpu sem snerist um endurvinnslu. Við áttum að fara í Sorpu, Rauða Krossinn eða Góða Hirðinn og finna þar hráefni til að búa til eitthvað nytlegt úr. Þannig áttuðum við okkur á því að sorp væri í raun og veru ákveðin auðlind", segir Tóta Einarsdóttir, en hún tók áfanga í Tækniskólanum síðasta vor sem vatt heldur betur upp á sig.

Tóta ákvað að vinna með sokkabuxur því henni þótti þær vera eitthvað sem endar oft í ruslinu. Margar konur kannast við að notagildi sokknabuxna sé oft á tíðum drjúgt en Tóta segist sjálf hafa hætt að fleygja þeim áður en hún byrjaði í áfanganum. Hún hafði ekki ákveðið hvað hún ætlaði að gera við þær en þegar hún byrjaði í endurvinnsluáfanganum fékk hún þá hugmynd að klippa þær niður og búa þannig til garn. Úr garninu prjónaði hún svo jakka, kjól, pils og topp.

Sokkabuxnajakki Tótu.
Tóta Einarsdóttir.
Hluti verkefnanna sem komu út úr áfanganum enduðu svo á síðum almanaks Sorpu, en það kemur út árlega og er dreift á þúsundir heimila. Verkefni Tótu var þar á meðal og prýðir sokkabuxnajakkinn hennar júlímánuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×