Tíska og hönnun

Cate Blanchett stal senunni

Leikkonan fagra Cate Blanchett stal senunni heldur betur þegar hún mætti í þessum rauða glanskjól frá Georgio Armani Privé á AACTA verðlaunahátíðina í Sidney fyrir nokkrum dögum. Snið kjólsins fór hinni 43 ára gömlu Blanchett mjög vel og fangaði hálsmálið athygli sérstaklega margra. Stjörnurnar þykja hafa farið óvenju örugga leið í klæðaburði á rauða dreglinum á viðburðum og kvikmyndahátíðum síðustu vikur. Það var því virkilega gaman að sjá einhvern þora taka áhættu sem gekk upp.

Glæsileg.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×