Tíska og hönnun

Glerfínar á góðgerðarsamkomu

Hið árlega amfAR galaball var haldið í New York í byrjun vikunnar. Viðburðurinn er alltaf haldin kvöldið áður en tískuvikan byrjar og er til styrktar baráttunni gegn alnæmi. Stjörnurnar mættu glerfínar til að styrkja gott málefni.
Sarah Jessica Parker í gólfsíðum rauðum kjól frá Maison Martin Margiela.
Fyrirsætan Crystal Renn stal senunni í kjól frá Zac Posen.
Poppy Delevingne dömuleg og elegant.
Alexa Chung krúttleg í Chanel.
Doutzen Kroes flott í hlýralausun appelsínugulum kjól sem fór henni afar vel.
Ashley Green falleg í kjól frá Giambattista Valli.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×