Viðskipti erlent

Svíar ræða hækkun á eftirlaunamörkunum

Eftirlaunaráð Svíþjóðar hefur lagt til við sænska þingið að réttur eldra fólks til að vinna verði hækkaður úr 67 árum og í 69 ár.

Þar að auki leggur ráðið til við þingið að ellilífeyrisgreiðslur til opinberra starfsmanna hefjist ekki fyrr en þeir hafa náð 63 ára aldri. Í dag er miðað við 61 árs aldur. Reiknað er með að þessar tillögur ráðsins verði teknar til umræðu á yfirstandandi þingi.

Í frétt um málið í Göteborg Posten kemur fram að eftirlaunaráðið hafi verið stofnað á vegum núverandi ríkisstjórnar Svíþjóðar árið 2011. Því var ætlað að móta tillögur sem tækju mið af því að meðalaldur Svía hækkar stöðugt og að bilið milli þeirra sem eru á eftirlaunum og starfandi fólks minnkar stöðugt.

Fram kemur í Göteborg Posten að í núverandi kerfi er mögulegt fyrir fólk að fara á eftirlaun þegar við 55 ára aldurinn. Þessi aldursmörk vill eftirlaunaráðið hækka en ekki kemur fram um hve mörg ár.

Skýrsla eftirlaunaráðsins með þessum tillögum og fleirum verður gerð opinber í apríl n.k.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×