Viðskipti erlent

Time Warner losar sig við Time tímaritið

Fjölmiðlarisinn Time Warner hefur ákveðið að losa sig við útgáfufélag Time tímaritsins. Auk Time heyra tímaritin Sports Illutrated, Fortune og People til útgáfunnar.

Time Warner ætlar að setja útgáfufélagið á markað fyrir lok ársins. Ástæðan fyrir þessu er taprekstur á félaginu undanfarin ár en Time hefur farið halloka fyrir vefmiðlum eins og svo mörg önnur tímarit og dagblöð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×