Bílar

Hyundai pallbíll

Finnur Thorlacius skrifar
Gæti pallbíll Hyundai litið einhvernveginn svona út?
Gæti pallbíll Hyundai litið einhvernveginn svona út?
Væri ætlaður fyrir Bandaríkjamarkað í fyrstu.

S-kóreski bílaframleiðandinn Hyundai státar orðið af sístækkandi breiðri línu bíla, en þó ekki pallbíla hingað til. Það gæti þó breyst innan tíðar því hönnuðir Hyundai hafa fengið það verkefni að skapa pallbíl sem beint verður sérstaklega að Bandaríkjamarkaði.

Hversu stór hann verður er ekki enn ljóst, en greinilegt er að til greina komi frekar smávaxinn pallbíll öndvert við pallbíla bandarísku framleiðendanna, en slíkur bíll gæti einnig átt mikið erindi á öðrum mörkuðum en í Bandaríkjunum. Hyundai segir að smíði pallbíla verði seint mikilvæg fyrirtækinu, en sjálfsagt sé að taka þátt í góðri sölu þeirra á ýmsum mörkuðum.






×