Bílar

Opel selur vel í Rússlandi og Tyrklandi

Finnur Thorlacius skrifar
Svalur Opel Astra OPC
Svalur Opel Astra OPC
General Motors teflir Opel og Chevrolet bílum fram á mismunandi mörkuðum.

Ímynd Opel í Rússlandi og Tyrklandi er góð og þarlendir sjá Opel merkið sem þýskt lúxusmerki. Þó að bílamarkaðurinn í Rússlandi vaxi hratt vex sala Opel þar helmingi hraðar og seldi Opel þar 80.000 bíla í fyrra. Innan fárra ára gæti salan í Rússlandi slegið við sölunni í heimalandinu Þýskalandi.

Ekki ósvipaða sögu er að segja frá Tyrklandi og seldi Opel 50.000 bíla þar í fyrra. Opel leggur einnig mikla áherslu á markaðina í Ástralíu, Chile, Singapore og í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Opel lætur kínverska markaðinn alveg í friði og lætur Chevrolet bílum þar sviðið eftir, en bæði merkin eru í eigu General Motors.

General Motors hefur uppi stórar áætanir fyrir Opel þrátt fyrir slæmt gengi GM í Evrópu og ætlar að kynna 23 nýja eða breytta Opel bíla til ársins 2016. GM hefur tapað 18 milljörðum dollara á rekstri sínum í Evrópu frá árinu 1999 og þar af 1,8 milljarði í fyrra. Opel á stóran þátt í öllu þessu tapi.






×