Viðskipti erlent

Prófessor segir að kókaín hafi valdið fjármálakreppunni

David Nutt prófessor við Imperial háskólann í London segir að kókaín hafi valdið fjármálakreppunni sem hófst af fullum krafti árið 2008.

Breskir fjölmiðlar fjalla um málið í dag, þar á meðal Sky News og Daily Telegraph. Þar kemur fram að prófessorinn segir að margir bankamenn hafi verið hátt upp á kókaíni síðustu árin fyrir fjármálakreppuna og að neysla þessa fíkniefnis hafi valdið sívaxandi áhættufíkn þeirra á fjármálamörkuðum.

Nutt segir að kókaínið hafi verið fullkomið fíkniefni fyrir þá menningu af spennu og áhættu sem drifið hafi bankamennina áfram þannig að þeir vildu sífellt „meira og meira og meira.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem David Nutt vekur athygli fyrir ummæli sín. Hann var rekinn úr starfi sem sérstakur ráðgjafi ríkisstjórnar Bretlands árið 2009. Það var eftir að hann lýsti því yfir að e-pillur og LSD væru minna skaðleg en áfengi og tóbak.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×