Viðskipti erlent

Nærfatarisi í deilum við kristna fyrirsætu

Nærfatarisinn Victoria´s Secret er komið í deilur við fyrirsætuna fyrrverandi Kylie Bisutti. Fyrirsætan hætti að starfa sem slík í fyrra þar sem þetta starf samræmdist ekki kristilegum gildum hennar en Kylie mun vera strangtrúuð.

Deilur nærfatarisans og Kylie hófust í síðustu viku þegar hún lét Victoria´s Secret fá það óþvegið í viðtali við tímarit. Kylie vann í fyrirsætukeppni á vegum nærfatarisans árið 2009 og starfaði sem fyrirsæta þar til í fyrra.

Í viðtalinu segir Kylie að hún hafi fundið sig knúna til að daðra við alla og að henni hafi liðið eins og „kjötstykki“ neðan hún vann fyrir nærfatarisann.

Talsmenn Victoria´s Secret hafa brugðist ókvæða við þessu og í yfirlýsingu um helgina frá þeim segir m.a. að yfirlýsingar Kylie séu lygi og rangar þegar kemur að starfi hennar á vegum nærfatarisans. Staðreyndin sé sú að eftir að Kylie vann fyrrgreinda fyrirsætukeppni hafi hún ekki starfað á vegum Victoria´s Secret að öðru leyti en því að hún var notuð í myndaröð um nýja baðfatalínu frá þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×