Viðskipti erlent

Sir Winston Churchill á nýjum 5 punda seðli

Andlit Sir Winston Churchill fyrrum forsætisráðherra Bretlands verður á nýjum 5 punda seðli sem tekinn verður í notkun árið 2016.

Í frétt á vefsíðu BBC er haft eftir Mervyn King seðlabankastjóra Englandsbanka að Churchill hafi verið valin sem mynd seðilsins þar sem hann hefði verið hetja alls hins frjálsa heims á sínum tíma.

Myndin sem hér um ræðir var tekin af ljósmyndaranum Yousuf Karsh árið 1941. Churchill mun vera eini stjórnmálamaðurinn á síðari tímum sem prýðir breska seðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×