Viðskipti erlent

Húsnæðisverð lækkar töluvert á evrusvæðinu

Húsnæðisverð lækkaði á evrusvæðinu á fjórða fjórðungi í fyrra um 1,8% frá sama ársfjórðungi árinu áður. Af þeim 13 evruríkjum þar sem tölur um húsnæðisverðsþróun er tiltæk lækkaði verð í átta þeirra á þessum tíma.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að verð lækkaði mest á Spáni en þar fór húsnæðisverð niður um 12,8% á tímabilinu. Þar næst koma Slóvenía, Holland og Portúgal með 8,8%, 6,1% og 6,0% lækkun. Tölur fyrir Grikkland vantar hins vegar inn í samanburðinn.

Af þeim fáu löndum innan evrusvæðisins þar sem verð hækkaði var hækkunin mest í Eistlandi, eða um 5,8%, og á Möltu um 5,4%. Kemur þetta fram í gögnum sem hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat) birti fyrir skömmu.

Eftir að fjármálakreppan skall á árið 2008 lækkaði húsnæðisverð talsvert á evrusvæðinu og náði botni á árinu 2009. Hækkaði það síðan nokkuð samhliða uppsveiflu á svæðinu fram á fyrri hluta árs 2011. Síðan þá hefur það verið að lækka og er nú orðið lægra en það fór lægst á árinu 2009. Hefur verðið ekki verið lægra síðan á seinni hluta árs 2006.

Lækkun húsnæðisverðs á svæðinu frá árinu 2009 hefur hangið saman við samdrátt á svæðinu sem var 0,9% á fjórða ársfjórðungi í fyrra og hefur verðlækkunin innan svæðisins verið mest í þeim löndum þar sem ástandið hefur verið hvað verst. Þannig var 1,9% samdráttur á Spáni á fjórða fjórðungi í fyrra, 2,8% samdráttur í Slóveníu, 0,9% samdráttur í Hollandi og 3,8% samdráttur í Portúgal. Þá var 6,0% samdráttur í Grikklandi á sama tíma.

Hér á landi hefur verð íbúðarhúsnæðis þróast með nokkuð öðrum hætti en á evrusvæðinu. Verð íbúðarhúsnæðis náði botni seinna hér en á evrusvæðinu eftir að fjármálakreppan skall á, eða á árinu 2010. Verðið hefur síðan verið að hækka þó svo að nokkuð hafi dregið úr hækkunartaktinum undanfarið. Húsnæðisverðið hefur þannig fylgt hagsveiflunni hér á landi sem hefur verið nokkuð hagfelldari undanfarið en á evrusvæðinu. Á fjórða fjórðungi í fyrra, þegar hagvöxtur mældist hér á landi 1,5%, hækkaði húsnæðisverð um 4,7% hér á landi frá sama ársfjórðungi árinu áður en lækkaði um 1,8% á evrusvæðinu líkt og áður sagði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×