Viðskipti erlent

Aftur risatap hjá japanska tæknirisanum Sharp

Risatap varð á rekstri japanska tæknirisans Sharp á síðasta uppgjörsári fyrirtækisins sem lauk í mars s.l. Tapið nam 545 milljörðum jena eða um 650 milljarða króna. Árið áður nam tap Sharp 376 milljörðum jena.

Í frétt um málið á vefsíðu BBC segir að litlu hafi munað að Sharp yrði gjaldþrota á síðasta ári. Þá var fyrirtækinu bjargað með 4 milljarða dollara neyðarláni frá japönskum fjárfestum.

Sharp reiknar með að skila hagnaði á yfirstandandi rekstrarári en þegar er búið að reka um 10.000 starfsmenn sem lið í umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×