Viðskipti erlent

Gates kaupir da Vinci handrit fyrir 3,6 milljarða

Bill Gates annar stofnenda Microsoft hefur fest kaup á 500 ára gömlu handriti eftir ítalska snillinginn Leonardo da Vinci fyrir tæplega 31 milljón dollara eða um 3,6 milljarða kr.

Þetta kemur fram á vefsíðu fréttaþáttarins 60 Minutes en rætt verður við Gates um málið í næsta þætti af 60 Minutes á sunnudaginn kemur.

Gates segir m.a. að handritið sé ómetanlegur fjársjóður þekkingar en da Vinci er þekktur fyrir að hafa fundið upp tæki eins og flugvélar og þyrlur hundruðum ára áður en þessir hlutir urðu daglegt brauð í heiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×