Viðskipti erlent

Angela Merkel er áfram valdamesta kona heimsins

Angela Merkel kanslari Þýskalands er áfram valdamesta kona heimsins. Þetta kemur fram á árlegum lista Forbes tímaritsins um 100 valdamestu konurnar. Merkel var einnig á toppi listans í fyrra.

Í umsögn Forbes segir að Merkel sé hryggjarstykkið í Evrópusambandinu og að örlög Evrópu hvíli á hennar herðum.

Í öðru sæti á listanum er Dilma Rousseff forseti Brasilíu og í þriðja sæti er Melinda Gates eiginkona Bill Gates annars af stofnendum Microsoft. Í næstu sætum eru svo Michelle Obama forsetafrú Bandaríkjanna og Hillary Clinton fyrrum utanríkisráðherra landsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×