Viðskipti erlent

Tölvuþrjótar kínverska Alþýðuhersins aftur á kreik

Deild 61398 er til húsa í hvíta húsinu á miðri myndinni.
Deild 61398 er til húsa í hvíta húsinu á miðri myndinni.

Sérstök deild tölvuþrjóta innan kínverska Alþýðuhersins er aftur komin á kreik og reynir að ráðast inn í tölvukerfi fyrirtækja og opinberra stofnana í Bandaríkjunum. Markmiðið er m.a. stórtækur þjófnaður á tæknileyndarmálum úr viðkomandi tölvukerfum.

Blaðið The New York Times fjallar um málið á vefsíðu sinni. Þar segir að um sé að ræða einingu innan hersins sem kallast Deild 61398 og er til húsa í háhýsi í útjaðri Shanghai.

Fyrir þremur mánuðum síðan komst Deild 61398 í heimsfréttirnar en þá var ljóstrað upp um stórfelldan þjófnað hennar úr tölvukerfum ýmissa stórfyrirtækja í Bandaríkjunum og opinberra stofnana. Bandaríkjamenn kvörtuðu undan deildinni við kínversk stjórnvöld og talið var að deildinni hafi verið skipað að hafa hægt um sig í framhaldinu.

Það er tölvuöryggisfyrirtækið Mandiant sem segir að Deild 61398 sé tekin til við að nýju að brjótast inn í tölvukerfi í Bandaríkjunum. Hinsvegar liggur ekki fyrir hver fórnarlömbin eru að þessu sinni. Mandiant segir þó að í mörgum tilvikum séu árásirnar gerðar á sömu fyrirtæki og stofnanir sem urðu síðast fyrir barðinu á þessum kínversku tölvuþrjótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×