Bílar

Audi vann Le Mans eina ferðina enn

Finnur Thorlacius skrifar
Audi bíllinn fremstur, eins og í lok keppninnar
Audi bíllinn fremstur, eins og í lok keppninnar
Le Mans þolaksturskeppninni lauk kl. 13 í dag. Það teljast líklega hefðbundin úslit að Audi vann með dísildrifna Hybrid bíl sínum og Audi náði einnig 3. og 5. sæti á samskonar bílum. Toyota kom mikið á óvart þessu sinni og náði 2. og 4. sæti. Sigurvegarinn náði að fara 348 hringi á brautinni á þessum 24 klukkustundum sem keppnin varir. Toyota bíllinn sem á eftir honum kom fór hring minna.

Það eru 3 ökumenn sem skiptast á að aka hverjum bíl og fyrirliði í sigurbílnum var Daninn Kristensen sem í dag var að vinna Le Mans keppnina í níunda sinn.  Meðalhraði sigurbílsins var 241,4 km/klst.






×