Viðskipti erlent

Apple seldi 31 milljón iPhone-síma

Steve Jobs, stofnandi Apple.
Steve Jobs, stofnandi Apple.
Apple seldi 31 milljón iPhone síma á síðasta ársfjórðungi. Er það 20% aukning frá sama tímabili í fyrra. Salan fór því fram úr björtustu spám sérfræðinga sem höfðu gert ráð fyrir að fyrirtækið myndi selja 26 milljón síma. Þá voru seld 14,6 milljón iPad spjaldtölva, en spár gerðu ráð fyrir að fyrirtækið myndi selja 18,3 milljónir

Hagnaður Apple dróst saman um 22 prósent á síðasta ársfjórðungi. Þrátt fyrir það hækkaði gengi félagsins um 4 prósent.  

Buisness Insider greinir frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×