Viðskipti erlent

Hagnaður Facebook tæpir 40 milljarðar króna

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Zuckerberg er ánægður með farsímavef Facebook.
Zuckerberg er ánægður með farsímavef Facebook. mynd/getty
Hagnaður af rekstri Facebook á öðrum ársfjórðungi nam 333 milljónum dala, en það samsvarar tæplega 40 milljörðum króna.

„Áhersla okkar á farsímavef Facebook hefur skilað góðum árangri og er traustur grunnur fyrir framtíðina,“ segir Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, í yfirlýsingu, en hagnaðurinn er sagður hafa farið fram úr væntingum.

Að sögn fjármálastjóra fyrirtækisins eyddu notendur Facebook 20 milljörðum mínútna á þessum vinsælasta samfélagsvef heims í júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×