Golf

Íslendingur fór holu í höggi með annarri hendi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Níunda holan er lengst til hægri.
Níunda holan er lengst til hægri. Fésbókarsíða Golfklúbbs Bakkakots
Sigurbjörn Theódórsson upplifði draum kylfingsins í síðustu viku þegar hann fór holu í höggi á Bakkakotsvelli í Mosfellsbæ.

Sigurbjörn, sem er einhentur, náði draumahögginu á 9. holu vallarins sem er par þrjú hola. Slegið er um 82 metra yfir vatn og í tilfelli Sigurbjörns þurfti aðeins eitt högg til.

Sigurbjörn slasaðist í skellinöðruslysi á sautján ára afmælisdeginum sínum og hefur verið lamaður á hægri hendi síðan að því er kemur fram í frétt Rúv.

Allir kylfingar sem fara holu í höggi á 9. holunni í Bakkakoti fá myndbandsupptöku af afrekinu að gjöf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×