Golf

Ólafur Björn og Signý í forystu á Símamótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Signý Arnórsdóttir úr Golfklúbbnum Keili.
Signý Arnórsdóttir úr Golfklúbbnum Keili. Mynd/GSÍmyndir.net
Ólafur Björn Loftsson og Signý Arnórsdóttir eru efst eftir fyrsta daginn á fimmta móti sumarsins á Eimskipsmótaröðinni í golfi, Símamótinu,  en mótið hófst á Leirdalsvelli í morgun. Þetta kemur fram á heimasíðu Golfsambandsins.

Alls eru 63 kylfingar skráðir til leiks sem er heldur færri en venjulega. Þetta skýrist meðal annars á því að á sama tíma fer fram Íslandsmót höggleik í flokkum unglinga á Hólmsvelli í Leiru.

Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum lék best í karlaflokki í dag en hann lék Leirdalsvöll á 70 höggum eða einu undir pari. Í öðru sæti er Rúnar Arnórsson úr Golfklúbbnum Keili en Rúnar lék í dag á pari vallarins eða á 71 höggi.

Jafnir í þriðja til fjórða sæti eru þeir Guðjón Henning Hilmarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðarbæjar og Aron Snær Hákonarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem léku báðir á 72 höggum eða einu höggi yfir pari.

Í kvennaflokki er það Signý Arnórsdóttir úr Golfklúbbnum Keili sem hefur forystu. Signý lék í dag á 72 höggum eða einu höggi yfir pari. Í öðru sæti er Sunna Víðisdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur en hún lék á 73 höggum í dag. Jafnar í þriðja til fjórða sæti eru síðan þær Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili.

Það verður ræst út á morgun frá kl 7:30 en hægt er að fylgjast með skori keppenda á golf.is/skor þar sem skor er uppfært á þriggja holu fresti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×