Golf

Tiger Woods í banastuði um helgina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tiger með eftir sigurinn
Tiger með eftir sigurinn Mynd / Getty Images
Kylfingurinn Tiger Woods lék óaðfinnanlega á Bridgestone-mótinu í Ohio um helgina og vann mótið með miklu öryggi en hann lauk keppni á fimmtán höggum undir pari.

Þetta var í 79. skipti sem Woods fer með sigur af hólmi á PGA mótaröðinni. Keegan Bradley varð annar á mótinu en hann lék hringina á átta höggum undir pari og því langt á eftir Tiger Woods.

Í vikunni hefst síðan PGA-meistaramótið en það ku vera fjórða og síðasta risamót ársins. Woods hefur ekki unnið risamót í fimm ár en verður að teljast langsigurstranglegasti keppandinn eins og staðan er í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×