Golf

Furyk leiðir á Oak Hill

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Furyk á átjándu holu í gær
Furyk á átjándu holu í gær Mynd/Gettyimages
Jim Furyk leiðir PGA-meistaramótið þegar einn hringur er eftir á Oak Hill vellinum. Hann tók fram úr landa sínum Jason Dufner á þriðja hring og leiðir fyrir lokahringinn.

Dufner sem spilaði glæsilega á föstudaginn þegar hann jafnaði met höggfjölda á stórmóti á árinu á 63 höggum kom inn á 71 í gær, einu yfir pari. Jim Furyk átti hinsvegar flottan hring og kom inn á 68, tveimur höggum undir pari og náði forskotinu.

Það verða því landarnir Furyk og Dufner sem spila saman í loka hollinu í dag. Næstu menn eru einnig landar, Svíarnir Henrik Stenson og Jonas Blixt koma næstir á sjö höggum og sex höggum undir pari. Ekkert virðist ætla að ganga hjá Tiger Woods sem er níu höggum yfir pari og er 13 höggum á eftir Furyk .

Fari svo að Furyk vinni mótið verður þetta aðeins annar sigur hans á stórmóti í golfi og hans fyrsti síðan 2003 þegar hann vann Opna bandaríska. Besti árangur Furyk á PGA-meistaramótinu kom árið 1997 þegar hann var jafn í sjötta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×