Golf

Tiger valinn kylfingur ársins

Tiger Woods.
Tiger Woods.
Tiger Woods er svo sannarlega kominn aftur. Hann hefur nú verið valinn kylfingur ársins á PGA-mótaröðinni. Þetta er í ellefta skiptið sem Tiger fær þessa útnefningu.

Tiger vann fimm mót á árinu og það dugði honum til þess að fá útnefninguna. Hinn tvítugi Jordan Spieth var valinn nýliði ársins.

Það eru kylfingar sjálfir sem velja kylfing ársins. Aðdáun annarra kylfinga á Tiger er því augljóslega enn mikil.

"Það sögðu margir að ég gæti aldrei unnið aftur mót. Nú tveim árum síðar er ég búinn að vinna átta mót. Þetta er virkilega skemmtilegt fyrir mig," sagði Tiger.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×