Viðskipti erlent

Þekktur leitarvélasérfræðingur á leið til landsins

Vanessa Fox er á leið til landsins.
Vanessa Fox er á leið til landsins.
Vanessa Fox, sem er einn þekktasti sérfræðingur á sviði leitarvéla á netinu, verður með heilsdags vinnustofu hjá TM Software í Hörpu þann 11. október.

Vanessa vann áður hjá Google, meðal annars við þróun Webmaster Central, sem er ein mikilvægasta þjónusta Google fyrir vefstjóra til að fylgjast með árangri og stöðu vefsíðna á leitarvélum. Hún hefur ennfremur haldið fjölda fyrirlestra og vinnustofa um heim allan og gefið út bókina Marketing in the Age of Google.  

Vanessa er stofnandi Nine by Blue sem þróað hefur hugbúnað til að aðstoða vefstjóra við að greina og bæta efni vefsíðna m.t.t. notenda leitarvéla. Vanessa er jafnframt einn af ritstjórum og aðalbloggurum á Search Engine Land. Hún er því sannkallaður hvalreki fyrir þá sem vinna að markaðssetningu, uppsetningu og efnisvinnu vefsíðna.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×