Golf

Loksins sigur hjá meginlandinu í Seve-bikarnum

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Lið meginlands Evrópu sem fagnaði sigri í Seve-bikarnum.
Lið meginlands Evrópu sem fagnaði sigri í Seve-bikarnum. Mynd/Getty Images
Meginland Evrópu hafði betur gegn Bretlandseyjum í Seve-bikarnum sem fram fór í Frakklandi um helgina. Meginlandið nældi sér í 15 vinninga gegn 13 vinningum hjá Bretum. Þar með náðu liðsmenn meginlandsins loksins að vinna eftir 13 ára bið.

„Þeir voru staðráðnir í að vinna. Ég held að það hafi skipt miklu máli hversu einbeittir við vorum,“ sagði Spánverjinn Jose Maria Olazabal sem stýrði liði meginlandsins. Talsverð spenna var í mótinu en liðin voru jöfn, 9-9, eftir þrjá keppnisdaga.

Það var Ítalinn Francesco Molinari sem tryggði meginlandinu sigur með því að leggja Englendinginn Chris Wood að velli. Sam Torrance stýrði liði Bretlandseyja sem hafði unnið sex sinnum í röð þar til í gær.

Mótið er nefnt eftir spænsku goðsögninni Seve Ballesteros sem féll frá fyrir tveimur árum. Hann átti stóran þátt í stofnun keppninnar og var jafnan fyrirliði meginlands Evrópu.

Frakkinn Gregory Burdy og Spánverjinn Miguel Angel Jimenez fögnuðu vel í leikslok.Mynd/Getty Images
Meginland Evrópu 15 - 13 Bretlandseyjar

Úrslit í tvímenning:

Gonzalo Fernandez-Castano gerði jafntefli við Jamie Donaldson

Nicolas Colsaerts vann Paul Casey 1 upp

Joost Luiten tapaði fyrir Tommy Fleetwood 3&2

Thomas Bjorn gerði jafntefli við Simon Khan

Gregory Bourdy vann Scott Jamieson 4&3

Thorbjorn Olesen tapaði fyrir Marc Warren 4&3

Matteo Manassero vann Stephen Gallacher 3&2

Mikko Ilonen tapaði fyrir Paul Lawrie 2&1

Miguel Angel Jimenez vann David Lynn 6&4

Francesco Molinari vann Chris Wood 3&2 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×