Viðskipti erlent

Eftirlitsbangsi fyrir áhyggjufulla foreldra

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Bangsi sem getur gefið foreldrum ungbarna nákvæmar upplýsingar um ástand barns sína á hvaða tíma sem er, er væntanlegur á markað í byrjun næsta árs. Samkvæmt vefsíðunni Gizmodo nýtist bangsinn bæði sem leikfang fyrir barnið en einnig sem eftirlitstæki fyrir foreldrana.

Bangsinn er útbúinn þannig að hann mælir hita barnsins og hann er einnig útbúinn hljóðnema sem mælir öll hljóð sem barnið gefur frá sér. Foreldrar geta til dæmis fengið nákvæmar upplýsingar um hversu langan tíma barnið þeirra hefur grátið.

Hann fylgist einnig með hjartslætti barnsins. Allar upplýsingarnar sem bangsinn fær eru svo sendar þegar í stað í síma foreldra þess. Áhyggjufullir foreldrar geta því fylgst með hverri hreyfingu barnsins sína á hvaða tíma sem er.

Bangsinn er einnig útbúinn hátalara sem gerir foreldrum kleift að tala við börnin sín, til dæmis í þeim tilgangi að róa þau. Bangsinn getur sömuleiðis spilað fyrirfram lesin skilaboð frá foreldrum til barnsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×