Golf

Þolinmæðin skiptir öllu máli

Rory fagnar um helgina.
Rory fagnar um helgina. AP/Getty
Árið 2013 hefur verið martaðarár fyrir kylfinginn Rory McIlroy. Eftir að hafa skotist upp á toppinn á ógnarhraða og gert risasamning við Nike hefur allt gengið á afturfótunum á golfvellinum.

Hann vann þó loksins mót um síðustu helgi eftir mikla eyðimerkurgöngu og er smám saman að nálgast sitt fyrra form.

"Ef ferillinn minn væri 18 holu golfvöllur þá myndi ég segja að ég væri aðeins á annarri eða þriðju holu. Ég hef ekki staðið mig svo illa hingað til," sagði McIlroy en hann hefur lært mikið og þurft að vera þolinmóður.

"Að halda áfram að vera þolinmóður og tapa sér ekki er stærsta lexían sem ég hef lært í ár. Golfið hjá manni fer upp og niður. Ég hef lært mikið. Ef maður heldur einbeitingu og fer ekki á taugum þá kemur þetta aftur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×