Viðskipti erlent

Japanar stækka herafla sinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Shinzo Abe, forsætisráðherra Japan.
Shinzo Abe, forsætisráðherra Japan. Mynd/EPA
Ríkisstjórn Japans hefur samþykkt nýja varnaráætlun og mun auka útgjöld til varnarmála á næstu árum. Aðgerðirnar eru taldar beinast gegn Kína og deilum landanna um eyjar í Kínahafi.

Frá þessu er sagt á vef BBC.

Japan mun kaupa búnað eins og dróna, flugvélar sem sjást ekki á ratsjá og farartæki sem ganga bæði á landi og sjó. Einnig verður sett upp ný herdeild landgönguliða sem verður fært að hertaka eyjar.

Þetta er fyrsta aukning útgjalda til varnarmála í Japan í áratug.

Forsætisráðherra Japan, Shinzo Abe, hefur kallað eftir því að Japan breikki það svið sem hernum sé leyfilegt að athægast innan, en það er mjög þröngt skilgreint í stjórnarskrá landsins sem samin var í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar.

Japan mun kaupa tvo tundurspilla, fimm kafbáta, 52 farartæki, þrjá dróna, 28 orrustuflugvélar og 17 flutningsflugvélar sem geta tekið lóðrétt á loft. Kostnaðurinn er talinn vera um 27 billjónir króna á næstu fimm árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×