Viðskipti erlent

Olíusalan dróst saman um 40%

Olíuframleiðsla Írans dróst saman um fjörutíu prósent á einu ári vegna refsiaðgerða vesturveldanna.
Olíuframleiðsla Írans dróst saman um fjörutíu prósent á einu ári vegna refsiaðgerða vesturveldanna. NordicPhotos/AFP
Olíusala Írans hefur fallið um allt að fjörutíu prósent frá því að vesturveldin hertu á viðskiptaþvingunum á landið fyrir um ári. Þetta staðfestir Rostam Quasemi, olíumálaráðherra Írans, og gefur í skyn að enn meiri samdráttar sé von.

Samdrátturinn er vegna refsiaðgerða sem eru tilkomnar vegna andstöðu vesturveldanna við kjarnorkuáætlun Írans. Stjórnvöld þar í landi hafa fram að þessu þrætt fyrir hin neikvæðu áhrif sem aðgerðirnar hafa haft en tölur frá OPEC, samtökum olíuríkja, og Alþjóða orkumálastofnun bentu til þess að framleiðslan hefði dregist saman úr 2,4 milljónum tunna á dag í 1,4 milljónir undir lok 2012.

Íranar halda sig fast við kjarnorkuáætlun sína og segja þá auðgun úrans sem fer fram í kjarnorkuverum þeirra einungis vera til orkuframleiðslu og borgaralegra nota, en vesturveldin og Ísrael telja að írönsk stjórnvöld stefni að því að framleiða kjarnorkuvopn.

Viðskiptaþvinganirnar síðasta árið hafa þrengt verulega að viðskipta- og efnahagslífi Írans. Eitt úrræðið sem stjórnvöld hafa er að lækka gengi ríalsins til að auka innflutning, en það myndi hafa afar neikvæð áhrif á kaupmátt almennings og aðföng fyrirtækja. - þj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×