Viðskipti erlent

Lúxemborg hlynnt opnara bankakerfi

Luc Frieden, fjármálaráðherra Lúxemborgar, opnaði í gær á aukna upplýsingagjöf um bankainnistæður útlendinga þar í landi. Nordicphotos/AFP
Luc Frieden, fjármálaráðherra Lúxemborgar, opnaði í gær á aukna upplýsingagjöf um bankainnistæður útlendinga þar í landi. Nordicphotos/AFP
Stjórnvöld í Lúxemborg hafa opnað á möguleikann á því að auka gagnsæi í fjármálakerfi landsins, og styrkja samvinnu við erlend skattayfirvöld og sjálfvirka upplýsingagjöf um innistæður í bönkum.

„Ólíkt því sem áður var, erum við ekki lengur alfarið mótfallin slíkum hugmyndum," sagði Luc Frieden, fjármálaráðherra Lúxemborgar, í samtali við þýskt dagblað.

„Við erum hlynnt auknu samstarfi við erlend skattayfirvöld."

Þetta eru talsverð viðbrigði þar sem Lúxemborg hefur hingað til staðið vörð um bankaleynd þrátt fyrir háværan orðróm um að þangað leiti auðmenn og fyrirtæki með fjármuni til að forðast að greiða af þeim skatta.

Þessi sinnaskipti eru talin tengjast uppljóstrunum um eigendur fjármuna í skattaskjólum, en auk þess hefur þrýstingur frá öðrum ríkjum aukist, en þar á meðal er Þýskaland sem leggur mikið upp úr því að fá upplýsingar um innistæður þýskra skattgreiðenda.

Lúxemborg er ríkasta ESB-ríkið, miðað við höfðatölu, en fjármálakerfið þar er um það bil 22 sinnum stærra en sem nemur árlegri landsframleiðslu. Þar er 141 banki með bækistöðvar, en einungis fimm þeirra eru innlendir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×