Golf

Ólafur Björn í úrtökumót fyrir PGA-mótaröð Suður-Ameríku

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Kylfingurinn Ólafur Björn Loftsson mun taka þátt í úrtökumóti fyrir PGA-mótaröðina í Suður-Ameríku sem fer fram í Flórdía síðar í mánuðinum.

Þetta tilkynnti hann á Facebook-síðunni sinni í dag en Ólafur Björn er nú kominn til Orlando þar sem hann ætlar að hefja nýtt keppnistímabil hjá sér.

Úrtökumótið hefst þann 21. janúar næstkomandi og munu 20 efstu kylfingarnir vinna sér inn þátttökurétt á mótaröðinni sem hefst í Kólumbíu í febrúar. Fimm efstu í peningalista mótaraðarinnar sjálfrar komast svo inn á Web.com-mótaröðina sem er sú næststærsta í Bandaríkjunum, á eftir PGA-mótaröðinni.

Ólafur Björn mun keppa á móti sem hefst í Orlando á þriðjudaginn til að koma sér af stað vestanhafs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×