Golf

Tryggði sér sigurinn með fugli á lokaholunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Scott Stallings með sigurlaunin sín.
Scott Stallings með sigurlaunin sín. Vísir/Getty
Bandaríkjamaðurinn Scott Stallings bar sigur úr býtum á Farmers Insurance-mótinu á PGA-mótaröðinni um helgina en það fór fram á Torrey Pines-vellinum í San Diego.

Stallings var þremur höggum á eftir fremsta manni fyrir síðasta keppnisdaginn en spilaði á 68 höggum í gær sem dugði til sigurs.

Lokahringurinn var æsispennandi og alls tíu kylfingar skiptust á að vera í forystu á meðan keppninni stóð. Stallings reyndist sterkastur á lokasprettinum og tryggði sér sigur með því að fá fugl á átjándu holu.

Tiger Woods blandaði sér ekki í þessa baráttu enda komst hann ekki í gegnum niðurskurðinn eftir þriðja keppnisdaginn, er hann spilaði á 79 höggum. Þá þurfti Phil Mickelson að draga sig úr keppni vegna bakmeiðsla.

Woods var ríkjandi meistari á þessu móti en hann hefur unnið það alls átta sinnum á ferlinum - fyrst árið 1999.


Tengdar fréttir

Tiger átta höggum á eftir forystusauðnum

Bandaríkjamaðurinn Stewart Cink var í banastuði á fyrsta degi Farmers Insurance mótsins í golfi á Torrey Pines vellinum í Kaliforníu í gær.

Óþarfi að örvænta segir þjálfari Woods

Þjálfari Tiger Woods segir að það sé óþarfi fyrir aðdáendur hans að örvænta þrátt fyrir skelfilega byrjun á árinu. Woods féll úr leik á Farmers Insurance mótinu á PGA-mótaröðinni í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×