Golf

Webster og Cabrera-Bello efstir fyrir lokahringinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Steve Webster.
Steve Webster. Vísir/Getty
Englendingurinn Steve Webster spilaði vel á öðrum degi Katar Master í golfi í dag. Hann deilir forystusætinu með Spánverjanum Rafa Cabrera-Bello fyrir lokahringinn.

Mikil spenna er fyrir lokahringinn sem fram fer á morgun en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Frakkinn Adrien Saddier spilaði hringinn í dag á átta höggum undir pari og er einu höggi á eftir forystusauðunum fyrir morgundaginn líkt og Thorbjörn Olesen frá Danmörku og Thomas Aiken frá Suður-Afríku.

Bein útsending frá lokadeginum hefst í fyrramálið á Golfstöðinni klukkan 9:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×