Golf

Frænka Tiger Woods vann ástralska meistaramótið

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/getty
Cheyenne Woods vann sitt fyrsta stórmót á ferlinum þegar hún vann ástralska meistaramót kvenna í golfi um helgina. Hún er frænka Tiger Woods sem sjálfur hefur unnið 14 stórmót á ferlinum og á greinilega ekki langt að sækja hæfileikana.

Hin 23 ára gamla Woods lék lokahringinn á Royal Pines vellinum á 69 höggum eða fjórum undir pari og vann með tveggja högga mun.

„Þetta er stór áfangi fyrir mig,“ sagði Woods eftir sigurinn. „Ég er búin að vera atvinnumaður í tvö ár og fólk hefur mest litið á mig sem frænku Tiger Woods. Nú hef ég unnið mitt fyrsta mót og það er spennandi.

„Nú get ég sagt við fólk að ég get leikið. Ég er ekki bara nafnið,“ sagði Woods sem neitar því ekki að pressa fylgi nafninu.

„Sviðsljósið hefur verið á mér en ég vissi alltaf að ég gæti unnið. Það er þungu fargi af mér létt því nú vita allir hvað ég get, ekki bara ég,“ sagði Woods sem tryggði sér sigurinn með því að fá þrjá fugla á sex síðustu holunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×