Golf

Nýliðinn Loupe efstur á Pebble Beach

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Andrew Loupe lék vel á fyrsta hring í gær.
Andrew Loupe lék vel á fyrsta hring í gær. Vísir/AP
Nýliðinn Andrew Loupe er efstur eftir fyrsta keppnisdag á AT&T Pebble Beach National Pro-Am mótinu sem fram fer í Kaliforníu á PGA-mótaröðinni. Leikið er á þremur völlum í mótinu og lék Loupe Monterey Peninsula völlinn á 63 höggum eða átta höggum undir pari.

Þessi 23 ára Bandaríkjamaður hefur tveggja högga forystu að loknum fyrsta keppnisdegi en næstir koma þeir Stuart Appelby og Scott Gardiner frá Ástralíu ásamt Bandaríkjamönnunum Jimmy Walker, Jim Renner og Richard Lee. Allir eru þeir á sex höggum undir pari.

Phil Mickelson lék fínt golf í gær. Hann lék með Condoleezzu Rice, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fyrsta hring.Vísir/AP
Phil Mickelson byrjar vel í mótinu og er á fimm höggum undir pari eftir að hafa leikið 15 holur af fyrsta hring. Hinn ungi og efnilegi Jordan Spieth lék fyrsta hringinn á fimm höggum undir pari.

Leikið er á hinum frábæra Pebble Beach velli í Kaliforníu auk Monterey Peninsula og Spyglass Hill vallanna. Fjölmargir frægir einstaklingar taka þátt í mótinu sem áhugamenn og er einnig keppt í liðakeppni.

Sýnt er beint frá öllum fjórum keppnisdögunum frá mótinu á Golfstöðinni og hefst bein útsending kl. 20:00 í kvöld.

Staðan í mótinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×