Golf

Peter Hanson lék best á fyrsta hring á Byron Nelson meistaramótinu

Hanson fagnar fugli á fjórðu holu í dag.
Hanson fagnar fugli á fjórðu holu í dag. AP/Getty




Svíinn Peter Hanson lék best allra á fyrsta hring á Byron Nelson meistaramótinu sem kláraðist nú í kvöld en hann lék Las Colinas völlinn í Texas á 65 höggum eða fimm höggum undir pari. Þrír kylfingar eru jafnir í öðru sæti á fjórum höggum undir pari en það eru þeir Marc Leishman, Tim Wilkinson og fyrrum besti kylfingur heims, David Duval.

Margir kylfingar eru jafnir í fimmta sæti eftir að hafa leikið á 67 höggum eða þremur undir í dag en þar má meðal annars finna Players sigurvegarann frá síðustu viku, Martin Kaymer.

Heimamaðurinn og sá kylfingur sem hvað flestir fylgdu eftir í dag, Jordan Spieth, átti ekki neina óskabyrjun en hann er jafn í 45. sæti á eftir að hafa leikið á 70 höggum eða pari vallar. Það sama gerði PGA-meistarinn Jason Dufner en hann hefur ekki átt góðu gengi að fagna í undanförnum mótum.

Sýnt verður beint frá öðrum hring á Byron Nelson meistaramótinu á Golfstöðinni á morgun og hefst útsending klukkan 19:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×