Golf

Sunna náði fugli á þremur holum í röð og vann Nettómótið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sunna Víðisdóttir er hér í miðjunni ásamt hinum verðlaunahöfunum á Nettómótinu, Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur og Karenu Guðnadóttur.
Sunna Víðisdóttir er hér í miðjunni ásamt hinum verðlaunahöfunum á Nettómótinu, Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur og Karenu Guðnadóttur. Mynd/GSÍmyndir
Sunna Víðisdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur tryggði sér sigur á Nettómótinu í golfi sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru um helgina þetta var fyrsta mótið á Eimskipsmótaröðinni í sumar.  

 

Sunna lék kvenna best á 75 höggum eða þremur yfir pari Hólmsvallar en hún spilaði hringina þrjá á 234 höggum eða 18 yfir pari. Hún var einu höggi á eftir Guðrúnu Brá fyrir lokadaginn en lék best í dag. Sunna lagði grunninn að sigri sínum með því að ná fugli á þremur holum í röð á seinni níu.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili varð í öðru sæti á 236 höggum en hún leiddi mest allt mótið en varð að lokum að sætta sig við annað sætið. Guðrún Brá tapaði tveimur höggum á holunum þremur þar sem Sunna náði í fugl.

Í þriðja sæti kom svo Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja á 240 höggum eða 24 yfir pari.

 

Næsta mótið á Eimskipsmótaröðinni fer fram á Strandavelli á Hellu og hefst það föstudaginn 30. maí.  

Eimskipsmótaröðin (1) - Nettó mótið - lokastaðan hjá konunum

1. Sunna Víðisdóttir, GR    +18

2. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK    +20

3. Karen Guðnadóttir, GS    +24

4. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK    +32

5. Berglind Björnsdóttir, GR    +33

6. Heiða Guðnadóttir, GKJ    +34

7. Signý Arnórsdóttir, GK    +36

7. Þórdís Geirsdóttir, GK    +36

9. Ingunn Einarsdóttir, GKG    +37

10. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR    +39




Fleiri fréttir

Sjá meira


×