Golf

Guðrún Brá og Bjarki efst í Leirunni

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Guðrún Brá er að spila vel
Guðrún Brá er að spila vel mynd/gsí
Bjarki Pétursson GB er með eins höggs forystu í karlaflokki og Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK er með sömu forystu í kvennaflokki á fyrsta móti Eimskipsmótaraðarinnar í golfi eftir tvo hringi af þremur.

Keppt er í Hólmsvelli í Leiru og er óhætt að segja að veðrið hafi sett mark sitt á leik kylfinga.

Leiknar voru 36 holur í gær en mótinu lýkur í dag þegar þriðji og síðasti hringurinn verður leikinn.

Guðrún Brá lék fyrri hringinn í gær á 8 höggum yfir pari en þann seinni á sex yfir pari og er því samtals á 14 höggum yfir pari.

Guðrún Brá er höggi á undan Sunnu Víðisdóttur GR og Karen Guðnadóttur GS. Berglind Björnsdóttir er fjórða á 20 höggum yfir pari.

Bjarki lék fyrri hringinn á fimm höggum yfir pari en veðrið var skaplegra síðdegis og skorið betra og þá lék Bjarki völlinn á pari.

Ragnar Már Garðarsson GKG og Andri Þór Björnsson GR eru höggi á eftir á sex yfir pari og Haraldur Franklín Magnús er fjórði á sjö yfir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×