Golf

Lowry og Björn efstir á Wentworth eftir tvo hringi

McIlroy er meðal efstu manna eftir fyrstu tvo dagana á Wentworth.
McIlroy er meðal efstu manna eftir fyrstu tvo dagana á Wentworth. AP/Getty
Thomas Björn leiðir enn á BMW PGA meistaramótinu sem fram fer á Wentworth vellinum á Englandi þegar að mótið er hálfnað en hann er á tíu höggum undir pari. Björn jafnaði vallarmetið í gær með hring upp á 62 högg eða tíu undir pari. Hann var ekki alveg jafn heitur í dag og lék á 72 höggum eða pari vallar enda aðstæður kaldari og erfiðari en í gær. Daninn leiðir þó ekki einn heldur deilir hann efsta sætinu með geðþekka Íranum Shane Lowry sem lék á 70 höggum í dag eða tveimur undir pari. Eiga þeir fjögur högg á næstu menn sem koma á sex undir.

Margir þekktir kylfingar eru ofarlega í mótinu og gætu hæglega gert atlögu að Björn og Lowry um helgina. Þar má nefna Rory McIlroy, Jonas Blixt og Henrik Stenson sem eru á fimm höggum undir pari og Luke Donald, sem tvisvar hefur unnið þetta sögufræga mót sem er á sex höggum undir.

Þá vekur athygli að Suður-Afríkumaðurinn Justin Walters, sem var meðal efstu manna eftir að hafa leikið á 67 höggum eða fimm undir pari eftir fyrsta hring, lék annan hring á 81 höggi, níu yfir pari og missti af niðurskurðinum með þremur höggum. Meðal þeirra sem náðu heldur ekki niðurskurðinum voru kylfingar á borð við Ernie Els, Charles Schwartzel, Darren Clarke og sigurvegari síðasta árs, Matteo Manassero.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×