Golf

Bubba Watson tekur forystuna fyrir lokahringinn í Ohio

Watson er í góðum málum í Ohio.
Watson er í góðum málum í Ohio. AP/Getty
Það stefnir allt í æsispennandi lokahring á Memorial mótinu sem fram fer á Muirfield vellinum í Ohio en eftir þrjá hringi leiðir Masters meistarinn Bubba Watson á 12 höggum undir pari. Scott Langley er í öðru sæti á 11 höggum undir en Japaninn Hideki Matsuyama er einn í þriðja sæti á 10 höggum undir pari.

Mörg stór nöfn eru ofarlega á skortöflunni og gætu hæglega gert atlögu að Watson á lokahringnum en þar má helst nefna besta kylfing heims, Adam Scott, sem er á níu höggum undir pari. Þá er hinn ungi Jordan Spieth á átta höggum undir og Rory McIlroy, sem átti hræðilegan annan hring, klóraði í bakkann í gær og er á sex höggum undir pari.

Paul Casey sem leiddi mótið eftir tvo hringi átti alls ekki góðan hring í gær en hann lék á 76 höggum, fjórum yfir pari og er hann samtals á átta höggum undir pari fyrir lokahringinn.

Útsending frá lokahringnum hefst á Golfstöðinni klukkan 15:00 í dag en klukkan 23:00 í kvöld verður skipt yfir á Shoprite Classic á LPGA mótaröðinni þar sem bestu kvenkylfingar heims leika til þrautar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×