Bílar

Jeppar og jepplingar meira en helmingur nýrra bíla í Bandaríkjunum

Finnur Thorlacius skrifar
Cadillac Escalade er einn þeirra jeppa sem selst vel í Bandaríkjunum um þessar mundir.
Cadillac Escalade er einn þeirra jeppa sem selst vel í Bandaríkjunum um þessar mundir.
Í nýliðnum apríl seldust fleiri jeppar og jepplingar en fólksbílar í Bandaríkjunum. Er það í tuttugasta mánuðinn í röð sem jeppar og jepplingar seljast í meira magni en fólksbílar þar.

Þessi mikla eftirspurn eftir jeppum og jepplingum hefur orðið til hækkunar verðs á þeim og í ár borga bandarískir kaupendur 9% hærra verð að meðaltali fyrir þá en í fyrra. Sala fólksbíla er svo róleg að víða safnast upp lagerar af þeim, en á meðan rjúka jepparnir og jepplingarnir út.

Bandaríkjamenn eru afar sólgnir í bílalán þessa dagana og hefur meðallengd þeirra verið að lengjast mjög undanfarið. Að þessu leiti var sett nýtt met í apríl, því meðallengd lánanna náði 67,8 mánuðum og hefur aldrei verið lengra. Það tekur því að meðaltali ríflega 5 og hálft ár fyrir meðal bandaríkjamanninn að klára að borga af nýjum bíl sínum. 






×