Viðskipti erlent

Bankastjóri Barclays rekinn

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Jenkins tók við starfinu eftir LIBOR-hneykslið en er núna á útleið.
Jenkins tók við starfinu eftir LIBOR-hneykslið en er núna á útleið. Vísir/AFP
Bankastjóri breska bankans Barclays, Antony Jenkins, hefur verið rekinn. Stjórnarformaður bankans hefur tekið tímabundið við starfinu á meðan leitað er að nýjum bankastjóra.

Jenkins var ráðinn bankastjóri fyrir þremur árum eftir að bankinn hafði gerst uppvís að því ásamt fimm öðrum alþjóðlegm bönkum að handstýra LIBOR-millibankavöxtum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×